Notkun á aloe vera
Það eru til margar ólíkar gerðir af aloe vera framleiðsluvörum. Þetta eru allt frá töflum og hylkjum til drykkja, áburðar- og snyrtivara. Mikið hreinsaðir drykkir eru markaðssettir sem safar og minna hreinsaðir eru markaðssettir sem gel. Í húðvörunum eru krem, áburðir, úðunarvörur (spray) og snyrtivörur sem og sjampó, svitalyktareyðar og hálsskolunar vökvar. Stundum er aloe gegndreypt í pappírsþurrkur og jafnvel í barnableiur, sokkabuxur kvenna og latex hanska. Hið nýjasta af vörum sem innihalda aloe vera er þvottaduft. Aloe vera virðist sannarlega hafa mikið auglýsingagildi.
Því miður er mikið af þeirri framleiðslu sem sagt er að í sé aloe vera, með svo lítið magn að það er svo til gagnslaust. Þegar leitað er að aloe vörum reynið þá að finna vörur þar sem aðalinnihaldið er aloe vera, ásamt öðrum efnum til viðbótar, en ekki öfugt. Leitið eftir innsigli Aloe Science Council, sem er til marks um viðurkenningu á viðkomandi framleiðsluvöru, og líttu ekki á ódýrar töflur með þurrkuðu aloe vera, sem eru eiginlega alveg gagnslausar.
Til að hafa áhrif, þá þurfa vörurnar að innihalda töluvert magn af aloe vera sem hefur verið meðhöndlað á þann hátt að það hefur ekki orðið fyrir miklum hita, síun eða samþjöppun. Þegar þú notar jurtaseyði, reyndu þá að finna það sem er eins nálægt plöntunni eins og mögulegt er. Berst er að finna framleiðslu sem væri með kaldunnið gel, ósíað og ósamþjappað.
Við þekkjum ekki alla efnisþætti aloe vera. Þess vegna er mögulegt að mikilvægir þættir gætu tapast í síunarferlinu. Margar framleiðsluvörur sem sagðar eru með aloe vera er framleiddar með síun, sem er aðallega gerð til að ná “aloinu” frá aðal efninu. Því miður gæti þessi aðferð leitt til þess að óþekkt en mikilvæg efni gætu síast frá um leið. Vörur sem eru framleiddar úr öllu blaðinu þar sem öll plantan er skorin niður við jörðu og síðan lögð í bleyti, verður því að sía með stöðugt fíngerðari síun, síðast gegnum kolefni eða viðarkol.
Aðrar framleiðsluvörur með annari aðferð, sem er þekkt sem flökunaraðferð. Laufblöð plöntunnar eru skorin af hvert fyrir sig og sett í gegnum vélar sem kreista gelið, og skilja eftir æða safann og hýðið. Þessar framleiðslu innihalda smá af aloinu, en magnið er það lítið að það skiptir varla máli. Því hefur verið haldið fram að lítið eitt af aloinu sé nauðsynlegt, til að auka upptökur úr meltingarveginum. Maður gæti sagt að smá skammtur af asperíni sé nauðsynlegur, sérstaklega ef þú ert með höfuðverk, þar sem stór skammtur aftur á móti gæti gert út af við þig.
Það er hvers og eins að meta hvaða framleiðslu á að velja, en það er vitulegt að vera á verðbergi gagnvart vörulýsingunni “inniheldur Aloe Vera”.