Kynning á aloe vera

Aloe vera, hin sanna aloe, heitir með réttur Aloe Barbadensis Miller. Læknisfræðilega þá er hún áhrifamest af öllum aloe tegundunum – sem eru u.þ.b. 350 og vaxa vítt og breitt um heiminn.

Þó svo aloe plantan líkist kaktusi þá er hún raunverulega þykkblöðungur og tilheyrir liljuætinni, hún er skyld lauk, hvítlauk og sperglum (asparagus). Allar aloe plöntur eiga uppruna sinn í Afríku, en þær hafa dreifst um víða veröld, til staða þar sem þær hafa fundið ákjósanlegt loftslag og skilyrði – sólríka, þurra staði þar sem aldrei kemur vottur af frosti, sem er versti óvinur plöntunnar.

Aloe vera er mjög farsæl jurt, vel varin gegn óvinum sínum – nagdýrum, skordýrum og fuglum. Rétt innan við börk, eða hýði plöntunnar er mjög beiskur, ólystugur safi sem hindrar öll dýr í að reyna að éta hana. Aleo jurtin getur fjölgað sér bæði með kynæxlum og kynlausri æxlun, eftir aðstæðum og getur hún lifað án vatns í nokkra mánuði. Aloe hefur þann eiginleika að geta lokað sig af og lokað loftaugum sínum, smáopum á blöðum plöntunnar, sem jurtin notar venjulega til þess að losa sig við vatnsgufu.

Aloe hefur aflað sér margra óvenjulegra viðurnefna víðsvegar um heiminn, þeirra á meðal, lækningarjurtin, kraftaverkaplantan og brunaplantan. Nafnið brunaplantan á uppruna sinn í hinum merkilega eiginleika aloe til að lina brunasviða, sá sem hefur fengið ferskan kreistan safa eða hlaup (gel) úr laufinu og borið á sólbrennda húð sína getur staðfest þetta. Sannarlega hefur aloe yfir að ráða óvenjulegum eiginleikum til að lina þjáningar, sem virka næstum því á augabragði. Ef oftar er borið á getur laufgelið einnig flýtt því að sár á húðinni grói.

Það eru margskonar not fyrir húðvörur með aloe, staðreynd sem er vel kunnug í snyrtivöruiðnaðinum. Í dag nota margir framleiðendur á umbúðir sínar “með aloe vera”, allt frá förðunarvörum og baðvörum til þvotta- og hreinsiefna. Á sama hátt og gelið er borið á húð þá má taka gelið eða safann inn og drekka hann sem heilsubótardrykk. Með eins margþætta notkun á þessari nytsömu jurt þá kemur það ekki á óvart að aloe vera hefur verið svo vinsæl í gegnum söguna.