Hvernig aloe vera virkar

Aloe vera virkar aðallega á tvö svið: Í fyrsta lagi á yfirborði líkamans og himnu (líffræðilega vísað til sem þekjuvefja) og í öðru lagi á ónæmiskerfið. Það virkar vel á báðum þessum sviðum. En það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að aloe vera er ekki kynjalyf eða “allra meina bót”.

Þekjuvefur er skilgreindur sem eitt eða fleiri lög af frumum er mynda yfirborð líkamans, utan sem innan t.d. húð. Húðin er stærsti þekjuvefurinn og bæði hár og neglur sem vaxa út úr honum eru þekjuvefur að uppruna.

Þekjuvefurinn verður slímkennd himna innan í munni, nefi, ennisholum og hálsi. Þekjuvefur fóðrar einnig vélinda, magann, þarmana, kynfærakerfið og lungun. Þar sem einhverjir þessara vefja eru skemmdir, þá getur aloe vera haft undraverð áhrif við að endurmynda vefi og stuðla að lækningu.

Fólk sem drekkur aloe vera reglulega finnst oft sem hárvöxturinn aukist og að þeir þurfi að heimsækja hárskeran oftar. Hárið verður einnig sterkara og þægilegra viðkomu. Þá getur aloe vera leikið mikilvægt hlutverk í leitinni að aðferðum til þess að koma í veg fyrir klofna hárenda og brotnar neglur.

Það hefur í sér öflug bólgueyðandi áhrif og víðtæk bakteríueyðandi virkni. Þegar það er borið á tiltekin hluta líkamans hefur það hæfileika til að smjúga djúpt inn í húðina þar sem það örvar bandvefsfrumurnar sem mynda kollagen og elastín. Það hvetur þær til að endurnýja sig fljótar en þær mynda gera við venjulegar aðstæður. Þetta hraðar því að skemmd húð eða himnur grói. Rannsóknir hafa sýnt að aloe vera getur aukið lækningarhraðann um þriðjung.

Það þarf því engan að undra að hár- og fegrunarvörur sem innihalda aloe vera séu svo vinsælar sem raun ber vitni.

Fegrunar eiginleikar aloe vera.

Gefur húðinni mýkra útlit með því að auka samloðun þar sem yfirborðs húðfrumur eru fastar saman.

Bætir áferð húðarinnar með miklum raka.

Dregur úr áhrifum útfjólublárra geisla með því að styrkja ónæmissvörun húðarinnar.

Dregur úr tilhneigingu til að fá lifrar- eða ellibletti. Í einstaka tilvikum geta blettirnir jafnvel horfið.
Minnkar hrukkumyndun með því að bæta endurnýjan bandvefja húðarinnar (frumurnar sem búa til
kollagen og elasín trefjar).

Aloe vera virkar á ónæmiskerifð vegna langkeðjusykra sem finnast í gelsykrulagi laufsins.

Fjölsykrurnar er hægt að frásoga í heilu lagi gegnum sérhæfðar frumur í yfirborðinu smáþarmanna. Þegar þær hafa verið frásogaðar geta þær haft áhrif á hina samskiptakerfi frumana (cytokínkerfið) sem kemur lagi á ónæmissvörunina. Rannsóknir hafa sýnt að í sumum tilfellum hafa fjölsykrur aukið í ónæmissvörunina meðan í öðrum tilfellum þá hefur það sýnt sig að þær hægja á henni. Þess vegna er þetta sykurefni þekkt sem ónæmisstillir. Það eru ekki mörg efni sem standast samanburð við þessa lýsingu.

Auk þess að hafa áhrif á vefi og ónæmiskerfið þá má líta á aloe vera sem fæðutegund. Hún sér okkur fyrir mörgum örnæringarefnum þegar hún er drukkin, sem og snefilefnum sem eru nú óðum að hverfa úr fæði okkur.

Á þeim svæðum sem aloe vex, oft á uppþornuðum sjávarbotnum og árfarvegum, er jarðvegurinn auðugur af steinefnum. Aloe plantan dregur til sín þessi steinefni úr jarðvegi og gerir þau aðgengileg fyrir okkur þegar við drekkum safa plöntunnar. Þetta eykur áhrifamátt alls ensímakerfisins okkar sem treystir á þessi snefilefni. Afleiðingin er því sú að allur líkami okkar starfar af meiri skilvirkni.