Forever Living Products

Fyrirtækið var stofnað í Bandaríkjunum árið 1978 af Rex Maughan sem nú er stjórnarformaður fyrirtækisins. Rex hafði þegar náð velgengni í viðskiptum, þegar að tengslamarkaðssetning náði athygli hans. Það sem vakti mestan áhuga hans á þessari nýju leið í markaðssetningu, var tækifærið sem það gat gefið öðrum til að verða fjárhagslega sjálfstæðir án mikils tilkostnaðar. Rex hafði einnig komist að raun um að eiginleikar Aloe Vera plöntunnar gætu hjálpað fólki að bæta heilsu sína og lífstíl. Með hágæðavörur og einfalda markaðssetningu í höndunum hélt hann svo fyrsta viðskiptafundinn 13. mai, 1978.

Rex gerði sér fljótlega grein fyrir því að lítið magn af Aloe Vera plöntum var til í landinu og til að tryggja fyrirtækinu og dreifingaraðilum sínum nægar birgðir eignaðist fyrirtækið sínar eigin plantekrur. Nú tæplega 30 árum síðar er Forever Living Products stærsti ræktandi, framleiðandi og dreifingaraðili af Aloe Vera vörum í heiminum og starfar nú í yfir 140 löndum. Fyrirtækið á yfir 5.000 ekrur af Aloe Vera plöntum í Bandaríkjunum, Mexíkó og í Karabískahafinu, en auk þess á það og rekur eitt stærsta býflugnabú í heiminum.


Fyrirtækið á og rekur einnig sínar eigin verksmiðjur og hefur sitt eigið dreifikerfi. Með því að eiga sínar eigin plantekrur og verksmiðjur getur fyrirtækið stjórnað gæðum framleiðslu sinnar og haldið henni lausri við óvistvæna áburði og skordýraeyða. Ströng gæðastjórnun og einkaleyfi á sérstakri kaldhreinsunarmeðferð tryggir fyrirtækinu ennfremur að safinn sem notaður er í vörurnar er eins ferskur og hann getur orðið.


Árið 2008 velti Forever Living Products um 2 milljörðum dollara og er fyrirtækið enn á hraðri uppleið. Forever Living Products er ólíkt öðrum fyrirtækjum að því leyti að það er ekki bara eitt stórt fyrirtæki, heldur mörg þúsund lítil og farsæl fyrirtæki sem rekin eru frá heimilum fólks víða um heim. Í dag er um 10 milljónir skráðir dreifingaraðilar fyrir Forever Living Products.


Forever Living Products hefur m.a. komist í eitt af efstu sætunum á lista hjá viðskiptatímaritunum Inc. 500, Venture og Buisness Age, yfir þau fyrirtæki sem eru á sem mestri uppleið. Af þeim fyrirtækjum sem komust á þennan lista, var Forever Living Products eina tengslamarkaðsfyrirtækið.