Efnasamsetning og efnafræði
Það tekur aloe vera plöntuna fjögur til fimm ár að ná þroska. Þegar hún er fullþroska þá eru laufblöð hennar sem vaxa frá stuttum stilk eða stofni u.þ.b 60 cm á lengd og u.þ.b. 8-10 cm á breidd við neðsta hlutann. Aloe vera er fjölær jurt og lifir í u.þ.b. 12 ár, en laufblöðin er hægt að nota til uppskeru frá því plantan er u.þ.b. tveggja ára.
Blómleggurinn vex út frá miðju klasa dökkgrænna laufblaða. Hann nær u.þ.b 90 cm lengd og myndar löng hólkalaga gul blóm.Blómin eru oft frjóvguð af kólibrífuglum, en plantan getur einnig framleitt litla sprota sem vaxa frá neðsta hluta móðurplöntunar og eru erfðafræðilega eins. Þeir breiða úr sér og verða að þyrpingu, eða þeir skilja sig frá jurtunni og dreifast með vindinum.
Laufblöðin mjókka í odd og eru með mjúka jaðarþyrna. Ef leggurinn er þverskorinn, má sjá að laufblöðin vaxa í blaðhvirfingu, rósamynstur af fjórum aðal efnisþáttum: hýði(börkur), æðasafi, jurtaslím (gelsykra) og innra gel (safi).
Hýðið á aole vera laufblaðinu er dökkgrænt og vaxkennt. Neðar eru æðastrengir eða pípurásir sem innihelada æðasafann eða “aloin”. Inni í því gelsykurlag, auðugt af fjölsykrum sem umlykja innra gelið eða frumuvefinn (vatnsforða-líffæri plöntunar).
Það eru fleiri en 75 þekkt efni í aloe vera laufblaðinu en þau hafa ekki öll verið staðfest. Sjálfsagt eru fleiri sem enn á eftir að uppgötva. Hinn fasti hluti plöntunnar er aðeins 0,5% til 1,5% (98,5% til 99,5% er þá vatn) og efniþættir hans er hægt að greina í nokkra aðalþætti:
1. Lignin (tréni): Algjörlega óvirkt sellulósaefni ef það er tekið inn, en talið gefa húðvörum hæfni til þess að smjúga djúpt inn í hörundið.
2. Sapónín: Þetta eru sópuefni sem hafa hreinsandi eiginleika. Þau innihalda náttúrulega, sótthreinsandi efni.
3. Anthraquinones: Þetta efni finnst eingöngu í æðasafanum. Það gefur hinu beiska aloe hin hægðalosandi áhrif. Það er athyglisvert að þessi efni finnast einnig í sennaplöntunni (belgjurt) og cascara trénu en efni í þeim eru notuð sem hægðalyf og jafnvel finnast þessi efni einnig í rabarbara.
4. Steinefni: Natríum, kalíum, magnesíum, kalsíum, zink, kopar, járn og króm. Eina mikilvæga steinefnið sem ekki finnst er seleníum, sem er mjög mikilvægt andoxunarefni (þráavarnarefni). Þess vegna ættu þeir sem taka inn aloe vera, einnig að taka inn selenium sem viðbót.
5. Vítamín: Þau eru aðalega andoxunarvítamínin A, C og E ásamt B hópnum, jafnvel með vott af B12, sem finnst örsjaldan í plöntum. Eina mikilvæga vítamínið sem ekki er í aloe vera er D vítamín. Þar af leiðandi er mikilvægt að fá nægilegt sólskín á húðina því húðin vinnur D vítamín úr sólskininu.
6. Amínósýrur: Mannslíkaminn þarfnast 20 amínósýra og aloe vera býr yfir 19 þeirra. Hún sér einnig fyrir sjö af hinum svokölluðu nauðsynlegu amínósýrum sem þurfa að takast inn sem fæða vegna þess að líkaminn getur ekki framleitt þær.
7. Ensím: Aloe vera inniheldur tvær megin gerðir af ensímum – bólgueyðandi ensím og meltingarensím. Fólk sem drekkur aloe vera regluelga hefur tilhneigingu til að vinna betur næringarefnin út fæðunni, sér í lagi prótín. Talið er að aloe vera hjálpi fólki við að vinna betur úr lyfjum – eitthvað sem er nauðsynlegt að vera miðvitaður um, því það er e.t.v ekki nauðsyn á jafn stórum skömmtum af hefðbundnum lyfjum þegar fólk er tekur inn aloe vera.
8. Sykrur: Aloe vera inniheldur bæði einsykrunga(mónósakkaríð) svo sem glúkósa (þrúgusykur) og fjölsykrur (pólísakkaríð). Af hinum síðarnefndu eru mikilvægastar langkeðjusykurnar, samsettar úr glúkosa og mannósa sameindum, sem hafa áhrif á ónæmiskerfið.
9. Plöntu sterólar: Aloe vera hefur þrjá plöntusteróla, sem allir búa yfir bólgueyðandi áhrifum.
10. Salisílsýra: Hún er lík aspirín að virkni og hefur verkjastillandi og bólgueyðandi áhrif.
Þú gætir undrast að svo lítið magn af aloe vera geti framkallað svo áberandi áhrif. Ástæðan er sú að öll efnin í aloe vera vinna saman í fullkomnu jafnvæi og samræmi. Áhrif efnanna saman er mun meiri en áhrif einstakra efna.