Dýrin og aloe vera

Þar sem reikningar dýralækna hafa hækkað, þá er það ekki undrunarefni að bændur og gæludýraeigendur séu áhugasamir um að meðhöndla dýr sín í lækningaskyni með áhrifamiklum náttúrulegum vörum, hvenær sem það er hægt.

Margir sem meðhöndla dýr vilja ekki nota kröftug lyf að nauðsynjarlausu, vegna hinna margvíslegu og oft óþægilegu hliðarverkana sem þau geta valdið. Þeir vija einnig forðast kemísk efni, nema þar sem þau eru óhjákvæmileg. Hér getur aloe vera komið að miklu gagni.

Aloe vera hefur sannanlega lækningaeiginleika og við inntöku þá er það kláðastillandi á náttúrulegan hátt. Það hefur náttúrurlega hæfileika til að þess að bæla histamín, svo það getur minnkað kláðann sem er samofninn mörgum húðvandamálum sérstaklega húðaofnæmi. (Ath. Histamín, er efni í mörgum dýra og plöntuvefjum, það verur ýmsum líffræðiilegum breytignum, m.a. víkkun háræða, við losun þess koma oft fram ofnæmiseinkenni í viðkamndi vefjum).

Það getur verið afskaplega erfitt að hindra dýr í að klóra sér og gera þannig ástandið sem veldur kláðanum enn verra. Fréttir um náttúruafurð sem getur linað kláðann eru góðar fréttir. Aloe vera úðar, sápur, gel, og propoliskrem er hægt að nota til að meðhöndla ýmis bólguvandamál í húð, svo sem húðbólgu, exem, ígerð, graftakýli og skordýrabit með sýkingu. Sveppasýkingum, svo og hringormur er einnig hægt að ráða bót á ásamt nuddsárum og sáramyndunum af aktygjum sem passa illa. Alls kyns sár svo sem fleiður og brunasár gróa mun fyrr eftir að aloe vera hefur verið borið á.

Með aloe vera áburðinum þá eru almennt minni líkur á að ör myndist, og þegar nýr feldur eða hár kemur í ljós, þá verður hinn nýji vöxtur með upprunalegum lit, frekar en hvítum, sem oft er raunin. Þetta eru miklir kostir þegar um sýningargripi er að ræða.

Þau efni sem nauðsynleg eru við að framleiða heilbrigðar húðfrumur berast til viðkomandi svæðis með blóðinu. Að bæta aloe vera geli í fæði dýranna getur hjálpað til við þetta ferli. Það getur samt sem áður orðið til vandræða þegar um ketti er að ræða, þar sem þeir eru sérstaklega sérvitrir og vandfýsnir og líka kannski ekki bragðið af drykknum. Ein lausn er að bera það á feldinn , sem þeir munu þá sleikja af er þeir hreinsa sig.

Dýr eru gjörn á að fá veriusýkinginar, sérstaklega inflúensusýkingar. Meðan flest dýr ná fullum bata þá er lítill minnihluti sem fær eftirveiru þreytueinkenni, lík ME(myalgic encephalitis), sem hefur áhrif á menn. Slík dýr verða þróttlaus og þreytast auðveldlega við æfingar.

Hvað hesta varðar getur þetta ástand verið sérstaklega áberandi og hefur veikjandi áhrif. Hefðbundnar meðferðir hafa ekki leitt til bata með þeim afleiðingum að mörg hross eru ófær um að snúa aftur til fyrri athafna, eins og kappreiða, reiðsýninga eða annarra uppákoma. Ólíkt mönnum þá er hestum sem búa við þetta ástand hættara við breytingum í blóðinu. Hvítu blóðkornunum fækkar stundum að hættumörkum.

Hrossadýralæknirinn Peter Green hafði eitt sinn 14 dýr sem fengu þessa sýkingu (post-viral lethargy) sem komu í kjölfar infúensu. Við það að nota aleo vera gel tókst að snúa 11 af þeim 14 til fullra heilsu sem áður hafði verið óþekkt. Blóðpróf sýndu að fyrir meðferð þá sýndu allir þessir hestar minnkandi hvít blóðkorn, en eftir meðferð sýndu 11 þeirrra að þeir höfðu náð eðlilegu ástandi.

Það er mjög líklegt að Green hafi náð þessum miklu áhrifum við að nota aloe vera vegna ónæmisstillandi áhrifum af langsykru, sem eiga rætur að rekja til símlags aloe vera plöntunnar og finnst í gelinu sem Green notaði.