Algeng vandamál

Það eru mörg algeng vandamál sem aloe vera getur átt stóran þátt í að leysa.

ÁSTAND HÚÐARINNAR.

Aloe vera hefur getu til að lækna skemmda húð. Með því að drekka safa plöntunnar þá færðu öll örfæðuefni og snefilefni sem þarf til að mynda nýja húðfrumur náttúrulega hátt.

Með því að bera aloe vera á tiltekin svæði þá er heilunarferlið auðveldað með því að minnka bólgur, koma í veg fyrir smit og örva húðfrumurnar sem kallaðar eru bandvefsfrumur (fíbróblasts), til að fjölga sér. Trefjar þeirra leggjast niður í sár og skemmda húð. Þær ýta undir lækningu með því að dragast saman og loka sárinu. Þær virka líka sem burðargrind fyrir nýjar húðfrumur til að vaxa yfir.

Áhrif aloe vera á húðina hefur um langa hríð gert það sem hjálparmeðal fólks til að halda sér unglega og fallegu. Hvað sem því líður þá geta hinir einstöku lækningaeiginleikar aloe vera veitt mikla hjálp við að lagfæra algeng húðvandamál. Þau eru m.a.:

Exem og húðbólga (der matitis):

Báðir þessir kvillar bregðast vel við meðferð með aloe vera, sérstaklega ef þeir eru krónískir þar sem ofnæmi spilar oft inn í. Unglingaexem eða húðexem svarar sérstaklega vel aloe vera, blönduðu rakakremi (þó svo sykrur í aloe vera geli virki sem rakagjafi í sjálfu sér). Börn með þessa tegund af exemi eigi það til að klóra sér mikið, jafnvel í svefni. Þar sem aloe vera hefur í sér náttúrulegt efni til varnar ofnæmi, þá er hægt að minnka kláðann og gefa útbrotinu tækifæri til að minnka. Þetta er nauðsynlegt vegna þess að þegar exem er klórað með óhreinum nöglum, þá er töluverð hætta á sýkingu, sem mun ýta undir að exemið breiði mjög fljótt út sér.

Sóríasis eða blettaskán (Psoriasis):

Hér er í raun um óreglu í ónæmiskerfinu að ræða. Sóríasis er almennt heilsufarslegt ástand sem getur birst sem húðvandamál. Það er til fjöldi frásagna sem styðja að nokkrar tegundir sóríasis svara því mjög vel drukkið sé aloe vera og einnig því að nota það sem áburð. Í nokkrum tilvikum hverfur það algjörlega, þó svo að það gerist ekki alltaf. Klínísk tilraun sem gerð var í Svíþjóð hefur sýnt fram á áhrif aloe vera áburðar á sóríasis. Tilraunin sýndi 83% bata fyrir þá sem notuðu aloe vera kremið, miðað við 6,6% þeirra sem notuðu lyfleysu.

Bólur (Acne):

Venjulegar bólur (vulgaris) og rosacea (í eldra fólki) bregðast vel aloe vera áburði. Hann getur minnkað bólgur, minnkað rauðan lit húðarinnar, sérstaklega hvað rosacea varðar. Áburðurinn getur einnig drepið bakteríur sem eru hluti af ástæðum fyrir venjulegum bólum. Þessu til viðbótar getur aloe vera einnig minnkað líkurnar á öramyndun, sem er mjög mikilvægt fyrir þá sem eru með bólur.

Sveppasýkingar (Fungal infections):

Kvillar eins og sveppasýkingar í húð (oft kallaðar hringormar) og “íþróttarfótur” svara vel meðhöndlan með aloe áburði. Það er vegna þess að aloe inniheldur efni sem geta drepið sveppi og gersveppi.

Króniskar fleiður og legusár (Chronic ulcers and bed sores):

Þessar meinsemdir er sérlega erfitt að meðhöndla, oft vegna þess að blóðflæðið til hins sýkta svæðis er ekki nægilega gott. Samt sem áður, ef blóðflæðið er nægjanlegt, þá eru lokaðar umbúðir með viðeigandi aloe oft nóg til að ná bata. Slíkri meðferð þarf þó að halda áfram af þrautsegju til að bati náist.

TRUFLANIR Í ÓNÆMISKERFINU

Aloe er með öfluga bólgueyðandi verkun við inntöku. Þar af leiðandi getur aloe vera haft mikilvæg áhrif á ástandið sem tengist ónæmiskerfinu.

Liðagigt (Rheumatioid arthritis):

Í mörgum tilvikum er hinn þjáði fær um að minnka notkun sína á venjulegum lyfjum og þess vegna er hann í minni áhættu af hliðarverkunum.

Sjúkdómar í stoðvef (Lupus):

Þessa truflun í tengivef, er í vissum, hægt að hafa góð áhrif á með því að taka inn aloe vera.

Átumein (Ulcerative colitis) og Crohn´s Desease:

Þetta eru bólguvandamál í þörmunum og við þeim getur verið gott að taka aloe vera. Nýleg bresk klínísk prófun hefur sýnt yfirburði aloe vera drykks yfir lyfleysu varðandi átumeinið.

Erting í meltingarfærum (Irratable Bowel Syndrome – IBS):

Hefðbundin læknisfræði segir að það sé ekk nein ein árnagursrík meðferð við þessum flókna sjúkdómi. Dr. Peter Atherton fann að helmingur þeirra sjúklinga sem hann meðhöndlað, hafa fengið töluverða bót með því að taka inn aloe vera (þó þetta segi ekk að það geti hjálpað í öllum tilvikum) Sjúkdómseinkenni IBS eru m.a. kveisuverkir og breytingar á hægðum (venjulega niðurgangur) sem eru að breytileika allt frá vægum, fátíðum köstum, til heiftarlegra og félagslega hamlandi kasta. IBS er ástand sem tengist starfsemi, það er ekkert líffræðilega í ólagi með ristilinn þegar hann er skoðaður í aðgerð eða við krufning; hann virkar bara ekki rétt. Dr. Peter Atherton telur að aloe vera hjálpi hér til vegna þess að það kemur reglur á hreyfingar ristilsins og fær hann til að dragast saman og slaka á, á taktfastan máta. Það ætti að öðru óbreyttu að minnka tilhneigingu til þess að fá kveisuverki.

Ennfremur kemur aloe vera reglu á þarmaflóruna. Ofvöxtur gerssvepps getur verið þáttur í IBS og ef gersveppur er haldið í skefjum þá ættu sjúkdómseinkenni að minnka. Dr. Peter Atherton telur að eiginleikar aloe til þess að koma jafnvægi á ónæmiskerfið hjálpi fólki að líða betur “inni í sér” sem hefur mikil áhrif á tilfinningarlega líðan. Þar sem álag er trúlega þáttur sem getur komið IBS af stað, þá ættu aukin vellíðan að hjálpa til við að draga úr köstunum.